Covid-skimun á Patreksfirði 23. og 24. apríl
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, í samstarfi við Íslenska erfðagreiningu, stendur fyrir skimun á Patreksfirði fyrir Covid-19 smiti 23. og 24. apríl.
Íslensk erfðagreining (deCODE genetics) is screening for COVID-19 in the general population in Patreksfjörður and surroundings on April 23rd and 24th.
Íslensk erfðagreining (deCODE genetics) i Instytut Zdrowia Westfjords prowadzą badania na Islandii, testując COVID-19. Zostanie przetestowany na Patreksfjordur w dniach 23 i 24 kwietnia.
Skrifað: 20. apríl 2020
Skimað verður í félagsheimilinu, en einstefna er inn og út úr húsinu til að halda 2 metra fjarlægð.
Skimunin er fyrir einstaklinga sem ekki finna fyrir einkennum og er ókeypis. Einstaklingar í sóttkví eða einangrun skulu halda sig heima. Þeir sem finna til einhverra einkenna skulu hafa samband við 450 2000 til að fá tíma í sýnatöku hjá heilbrigðisstofnuninni.
Heilbrigðisstarfsfólk tekur sýni úr bæði hálskoki og nefkoki. Niðurstaða greiningarinnar verður birt á vefnum heilsuvera.is og hringt er í alla sem reynast bera smit.
Bóka þarf tíma á vef Íslenskrar erfðagreiningar, https://bokun.rannsokn.is/. Opnað verður fyrir bókanir þegar nær dregur. Best er að nota rafræn skilríki en hægt er einnig að nota kennitölu og símanúmer.
Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu HVEST
English
The objective is to learn about community spread of the virus.
The testing is free of charge. You can register by visiting https://bokun.rannsokn.is/. The site accepts booking a few days in advance. Electronic ID or kennitala and telephone number are needed to register.
Polski
Celem badania jest poznanie sposobu rozprzestrzeniania się wirusa w społeczności.
Testowanie jest bezpłatne. Możesz się zarejestrować, odwiedzając stronę internetową: https://bokun.rannsokn.is/. Rezerwacje wkrótce się otwierają. Konieczne jest posiadanie dowodu osobistego lub numeru ubezpieczenia społecznego i numeru telefonu.