Hoppa yfir valmynd
  • Þjónusta
  • Mannlíf
  • Stjórnsýsla
  • Íbúagátt
    • English
    • Polski
  • Leit
  • Íbúagátt
  • English
  • Polski
  1. Stjórnsýsla
  2. Útgáfa & auglýsingar
  3. Fréttir og tilkynningar

Covid - Tökum því rólega í næstu viku

Upp hafa komið fleiri smit á Patreks­firði sem tengjast fyrra hópsmiti. Samkvæmt núgild­andi reglum er formleg sóttkví fimm dagar. Þrátt fyrir það er alltaf mögu­leiki á að smit greinist ekki við lok sótt­kvíar og taki sig upp í kjöl­farið. Það er því mikil­vægt að fara varlega fyrstu dagana eftir að sóttkví lýkur og fara í sýna­töku við minnstu einkenni.


Skrifað: 5. desember 2021

Næstu daga hvetjum við íbúa til að fara sérstaklega varlega og draga úr öllu samneyti nema brýna nauðsyn beri til. Þeir aðilar sem hyggjast standa fyrir viðburðum í næstu viku eru hvattir til að að fresta þeim í að minnsta kosti um viku, til að koma í veg fyrir að hópsmitið muni teygja sig inn í jólahátíðina okkar.

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Patreksfirði er á óvissustigi til og með 8. desember nk. Þrátt fyrir það þá fara fram sýnatökur og eru íbúar hvattir til að skrá sig í sýnatöku. Þá er ekki mælt með því að notuð séu hraðpróf eða heimapróf við þessar aðstæður þar sem þau geta veitt falskt öryggi. Þá eru íbúar sem eru að koma frá höfuðborgarsvæðinu eða erlendis frá beðnir um að fara sérstaklega varlega og mæta í sýnatöku.

Vesturbyggð hvetur svo alla foreldra og forráðamenn að senda börn sín ekki í leik- og grunnskóla ef minnstu einkenni eru og skrá sig í sýnatöku hjá heilbrigðisstofnuninni.

Gætum að sóttvörnum, virðum sóttkví og saman komumst við í gegnum þetta.

Bæjarstjóri

Gerður Björk Sveinsdóttir gerdur@vesturbyggd.is / 450 2300


Vesturbyggð

Ráðhús Aðalstræti 75, Patreksfjörður

+354 450 2300 vesturbyggd@vesturbyggd.is kt. 510694 2369


2018 & 2019 Opinberi vefur ársins

2018 Vefur ársins

2020 Jafnlaunavottun