Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Deild­ar­stjóri FSN á Patreks­firði

Staða deild­ar­stjóra við Fram­halds­deild Fjöl­brauta­skóla Snæfell­inga á Patreks­firði er laus til umsóknar.


Skrifað: 16. maí 2022

Starfsauglýsingar

Deildarstjóri á Patreksfirði er nemendum til aðstoðar og stuðnings. Deildarstjórinn hefur umsjón með nemendum, aðstoðar þá í náminu og í samskiptum við kennara ef á þarf að halda.

Starfið felst m.a. í umsjón með daglegri starfsemi deildarinnar og aðstoð við nemendur, en þeir stunda dreifnám frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Viðkomandi fylgir nemendum í námsferðir til Grundarfjarðar, en þangað er farið að jafnaði þrisvar sinnum á önn.

Leitað er að einstaklingi sem hefur góða skipulagshæfileika og er lipur í samskiptum. Háskólamenntun æskileg. Einnig er mikilvægt að viðkomandi sé fljótur að tileinka sér nýjungar og sé vel tölvufær. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi góða íslenskukunnáttu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Er nemendum á Patreksfirði til aðstoðar og stuðnings
  • Hefur umsjón með nemendum, aðstoðar þá í náminu og í samskiptum við kennara ef á þarf að halda
  • Er í samstarfi við aðra starfsmenn, nemendur, foreldra og forráðamenn
  • Hefur viðtalstíma fyrir nemendur sína og forráðamenn þeirra
  • Aðstoða nemendur við athafnir í daglegu lífi á skólatíma
  • Aðstoða kennara eða þroskaþjálfa í kennslustundum
  • Vinna að sértækum verkefnum með nemendum undir stjórn kennara eða þroskaþjálfa
  • Skipuleggur og undirbýr nemendaferðir til Grundarfjarðar

Hæfniskröfur

Leitað er að einstaklingi sem hefur góða skipulagshæfileika og er lipur í samskiptum. Háskólamenntun æskileg. Einnig er mikilvægt að viðkomandi sé fljótur að tileinka sér nýjungar og sé vel tölvufær.

    Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2022

    Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

    Ráðið er í stöðuna frá 15.ágúst 2022. Starfshlutfall er 80%

    Nánari upplýsingar veita Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, skólameistari, sími 430 8400 / 865 0424, netfang hrafnhildur@fsn.is og Sólrún Guðjónsdóttir, aðstoðarskólameistari, sími 4308400 / 849 1015, netfang solrun@fsn.is

    Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist skólameistara, Grundargötu 44, 350 Grundarfirði eða á netfangið hrafnhildur@fsn.is síðasta lagi 31.05.2022. Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðublöðum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.