Deildarstjóri stoðþjónustu - Patreksskóli
Viltu þú vera hluti af metnaðarfullum starfsmannahópi þar sem skapandi og fjölbreyttir kennsluhættir eru hafðir að leiðarljósi? Í Patreksskóla er gróskumikið skólastarf en meðal áherslna skólans er faglegt lærdómssamfélag, einstaklingsmiðað nám, leiðsagnarnám og samþætting námsgreina þar sem grunnþættir menntunar endurspeglast í skólastarfi.
Laus er til umsóknar staða deildarstjóra stoðþjónustu í Patreksskóla frá og með 1. janúar 2023 í eitt ár vegna afleysinga
Stöðuhlutfall er 100% og þarf af stjórnunarumfang 30%.
Stafssvið
- Skipuleggja og stýra fyrirkomulagi stoðþjónustu
- Kennsla nemenda með sérþarfir
- Skipuleggja framkvæmd kennslu barna með íslensku sem annað mál
- Vera í forystu um gerð einstaklingsnámsskráa og vera ráðgefandi aðili við gerð þeirra
- Vera kennurum skólans faglegur ráðgjafi um skipulag kennslu
- Vera öðrum kennurum skólans innan handar varðandi skipulag kennslu nemenda með sérþarfir
- Leiðbeina stuðningsfulltrúum í samstarfi við umsjónarkennara
- Gera stundatöflur stuðningsfulltrúa í samráði við skólastjóra og kennara
- Aðstoða umsjónarkennara til að vera í samstarfi við heimili, skóla og stoðþjónustu vegna nemenda með sérþarfir
- Annast samskipti við sérfræðinga skólateymis Patreksskóla í samráði við skólastjóra eða aðra aðila stoðþjónustunnar
- Halda utan um niðurstöður greininga/skimana í samráði við skólastjóra, skipuleggja og fylgja eftir inngripum í kjölfar skimana
- Tengiliður nemenda samkvæmt farsældarlögum
Menntunar og hæfniskröfur
- Leyfi til að nota starfsheitið kennari
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi (s.s. þroskaþjálfa- eða iðjuþjálfamenntun)
- Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði sérkennslu
- Stjórnunarreynsla æskileg
- Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
Umsóknarfrestur er til og með 18. desember 2023
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.
Umsóknir skulu berast á netfangið asdissnot@vesturbyggd.is fyrir 18. Desember 2023. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.