Deildarstjóri yngsta stigs Patreksskóla
Patreksskóli er um 100 barna skóli, með 10 bekkjardeildir og efstu deild leikskóla. Skólinn er með veglegt íþróttahús og sundlaug í örfárra skrefa fjarlægð. Patreksskóli vinnur með Uppbyggingarstefnuna að leiðarljósi og einkunnarorð skólans eru jákvæðni, virðing og samvinna. Verkmenntun er áhersluatriði og tenging við atvinnulíf staðarins. Fjölbreyttir kennsluhættir og einstaklingsmiðað nám og vinna með styrkleika nemenda er í fyrirrúmi.
Starfssvið
- Deildarstjóri er millistjórnandi og ber ábyrgð á skólahaldi á yngsta skólastigi.
- Fylgist með nýjungum á sviði kennslu og er leiðandi í faglegri umræðu.
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila.
- Umsjón með sérúrræðum nemenda í samráði við kennara og aðra stjórnendur
- Skipulagning heildstæðs skóla fyrir 5–9 ára nemendur, þ.m.t. frístund
- Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Er í forystu um mótun og framkvæmd faglegrar stefnu skólans innan ramma laga og í samræmi við aðalnámskrá leik og grunnskóla og skólastefnu Vesturbyggðar
Menntunar og hæfniskröfur
- Einstaklingur með leyfisbréf til kennslu sem er metnaðarfullur og víðsýnn.
- Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og/eða uppeldis- eða kennslufræði æskileg
- Reynsla af stjórnun og stjórnunarstörfum er æskileg
- Leiðtogafærni og hæfni til að leiða framsækið skólastarf
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Reynsla af teymisvinnu kostur
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Stundvísi og samviskusemi
Umsóknarfrestur er til og með 30. júlí 2020
Sveitarfélagið aðstoðar við flutning og við að útvega húsnæði. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Frekari upplýsingar um störfin gefur Ásdís Snót Guðmundsdóttir. Umsóknir skulu berast á netfangið asdissnot@vesturbyggd.is