Skipulagsauglýsing Hafnarbraut
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að eftirfarandi deiliskipulagi:
Deiliskipulag lóðar við íþróttahús á Bíldudal.
Auglýst er tillaga deiliskipulagi fyrir lóð við íþróttahús við Hafnarbraut á Bíldudal. Lóðin er staðsett á landfyllingu við Hafnarbraut, um er að ræða nýja lóð.
Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýstar tillögur að eftirfarandi breytingum á aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-2018.
Breyting á aðalskipulagi á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-2018 vegna stækkunar íbúðarsvæðis við Hafnarbraut
Breytingin felur í sér stækkun á íbúðarsvæði við Hafnarbraut á kostnað opins svæðis Ú7.
Tillögurnar liggja frammi á skrifstofu Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, frá og með 7. janúar til 19. febrúar 2021 og er einnig til sýnis á heimasíðu Vesturbyggðar, www.vesturbyggd.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir til 19. febrúar 2021.
Skila skal athugasemdum á skrifstofu Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, 450 Patreksfirði.
Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar.
Virðingarfyllst,
Skipulagsfulltrúi Vesturbyggðar