Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 3 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Skipu­lagsaug­lýsing Hafn­ar­braut

Samkvæmt 41. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að eftir­far­andi deili­skipu­lagi:

Deili­skipulag lóðar við íþróttahús á Bíldudal.

Auglýst er tillaga deili­skipu­lagi fyrir lóð við íþróttahús við Hafn­ar­braut á Bíldudal. Lóðin er stað­sett á land­fyll­ingu við Hafn­ar­braut, um er að ræða nýja lóð.


Skrifað: 7. janúar 2021

Skipulög í auglýsingu

Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýstar tillögur að eftirfarandi breytingum á aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-2018.

Breyting á aðalskipulagi á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-2018 vegna stækkunar íbúðarsvæðis við Hafnarbraut

Breytingin felur í sér stækkun á íbúðarsvæði við Hafnarbraut á kostnað opins svæðis Ú7.

Tillögurnar liggja frammi á skrifstofu Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, frá og með 7. janúar  til 19. febrúar 2021 og er einnig til sýnis á heimasíðu Vesturbyggðar, www.vesturbyggd.is.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir til 19. febrúar 2021.

Skila skal athugasemdum á skrifstofu Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, 450 Patreksfirði.

Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar.

Virðingarfyllst,

Skipulagsfulltrúi Vesturbyggðar

Skipulagsfulltrúi

Óskar Örn Gunnarsson
oskar@landmotun.is / 575 5300