Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 4 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.
Dýralæknir á Patreksfirði þann 27. október
Sigríður dýralæknir verður á Patreksfirði þriðjudaginn 27. október frá kl. 14-15 með árlega hreinsun og bólusetningu. Sigríður er með aðstöðu við tjaldsvæðið, gengið inn við vesturenda Félagsheimilis Patreksfjarðar.
Aðeins einn má fara inn í einu til að tryggja sóttvarnir.
Ef dýraeigendur þurfa á annarri aðstoð dýralæknis að halda þá eru þeir vinsamlega beðnir um að hringja í Sigríði áður en hún kemur á svæðið í síma 861 4568 milli kl. 10 og 12 virka daga.