Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 2 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Dýra­læknir í Vest­ur­byggð

Sigríður dýra­læknir verður á Patreks­firði fimmtu­daginn 9. desember frá kl. 15-17 með árlega hreinsun og bólu­setn­ingu. Sigríður verður með aðstöðu við tjald­svæðið, gengið inn við vest­ur­enda Félags­heim­ilis Patreks­fjarðar.

Þeir sem vilja nýta sér að dýra­læknir verði á svæðinu er bent á að setja sig í samband við Sigríði í tölvu­pósti sisvet@snerpa.is eða í síma 861 4568.

Fólk skal gæta sérlega vel að sótt­vörnum, grímu­skyldu og að koma ekki til dýra­læknis, séu til staðar minnstu einkenni um veik­indi eða grunur um smit.


Skrifað: 1. desember 2021

Auglýsingar