Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Eldis­bændur - Seiða­fram­leiðsla

Arnarlax leitar að metn­að­ar­fullum og áhuga­sömum eldis­bændum í seiða­fram­leiðslu fyrir­tæk­isins á Hall­kels­hólum. Verk­efnin eru fjöl­breytt og krefj­andi.


Skrifað: 2. febrúar 2023

Starfsauglýsingar

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umönnun, fóðrun og eftirlit með laxinum okkar
  • Skráning, skjölun, sýnataka og vatnsgreining
  • Ýmis verkefni tengd bólusetningu, flokkun og afhendingu
  • Aðstoð við skipulagningu, samhæfingu og eftirfylgni með verkþáttum
  • Eftirlit og skoðun á búnaði og aðstöðu

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Vandvirkur einstaklingur sem gætir að eigin heilsu og öryggi
  • Góð samskiptahæfni, sjálfstæð vinnubrögð og árangursmiðað hugarfar
  • Hefur gaman af krefjandi verkefnum
  • Reynsla eða menntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Íslensku- eða enskukunnátta er skilyrði

Arnarlax býður:

  • Spennandi vinnuumhverfi í ört vaxandi atvinnugrein
  • Flutningastyrk ef við á
  • Góð tækifæri til að þróast, bæði persónulega og faglega
  • Fjölbreytt verkefni, námskeið og þjálfun
  • Stuðning til náms á því sviði sem starfið tekur til
  • Samkeppnishæf laun

Umsóknarfrestur er til og með 12. febrúar 2023

Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi fyrir starfið.

Nánari upplýsingar veitir mannauðsstjóri Arnarlax, Karen Ósk Pétursdóttir, karen@arnarlax.is.