Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir u.þ.b. 2 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Endur­skoðun á skóla­stefnu Vest­ur­byggðar

Nú stendur yfir endur­skoðun á skóla­stefnu Vest­ur­byggðar. Meðal þess sem litið er til við endur­skoðun stefn­unnar er að greina hvar við erum stödd og hvert við viljum stefna í skóla­málum í Vest­ur­byggð. Vest­ur­byggð nýtur ráðgjafar Ásgarðs (AIS ehf.) við endur­skoðun stefn­unnar.


Skrifað: 15. mars 2022

Auglýsingar, Fréttir

Vesturbyggð vill því heyra frá þér, hvert vilt þú að skólamál í Vesturbyggð stefni til framtíðar?

Um er að ræða fjarfund 22. mars nk. sem fer fram á þessum hlekk á Zoom:  https://us06web.zoom.us/j/87965721394

Fundurinn hefst kl. 20:00 og lýkur um kl. 21:30.

Dagskrá fundarins 

  • Kynning á endurskoðun skólastefnu, stýrihóp og tímalínu – Kristrún Lind Birgisdóttir
  • Fyrirlestur – umræður/spurningar
    • Gerð og mikilvægi skólastefnu sveitarfélaga – Kristrún Lind Birgisdóttir
  • Hópavinna – Stýrihópur stjórnar umræðum.
    • Samantekt. Hópar kynna helstu niðurstöðu fyrir öllum fundarmönnum
  • Lokaorð – Kristrún Lind Birgisdóttir

Hvetjum alla sem áhuga hafa að tengja sig inn á fundinn.