Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 3 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Eyrasel opið aftur

Eyrasel á Patreks­firði er opið eftir hádegi frá mánu­degi til fimmtu­dags. Starfið er mismun­andi eftir dögum og er skipu­lagt og mótað eftir þörfum þess sem mæta. Á meðan gilda reglur um 1 meters fjar­lægð þá telst ekki þörf á að skipta hópnum upp og því geta allir mætt hressir og kátir.


Skrifað: 8. september 2020

Auglýsingar, Fréttir

Selið (eins og það er kallað í daglegu tali) er opið öllum 18 ára og eldri en starfið er skipulagt eftir vikudögum á eftirfarandi hátt;

Á mánudögum og miðvikudögum er opið fyrir alla, sérstaklega fyrir þá sem eru heima á daginn ekki í vinnu eða skóla hvort sem það er vegna veikinda, endurhæfingar, örorku, atvinnuleysis eða einhvers annars. Þessa daga fer starfið algjörlega eftir þeim sem mæta en venjulega er byrjað á léttri göngu kl. 13:15, og kaffi og spjall á eftir.

Á þriðjudögum frá kl. 13:00 – 16:00 er starfið skipulagt fyrir eldri borgara.

  • Byrjað er á stólaleikfimi aðeins til að hita upp fyrir daginn
  • Starf í föndurherbergi, létt spjall í stofunni, spilað og kaffi og smá með því kl. 15:00
  • Kaffi og meðlæti kr. 300

Á fimmtudögum er opið frá kl. 13:00 – 16:00

  • Alda bókasafnsvörður kemur með bækur til útláns
  • Rabbi mætir og spilar undir fyrir söng
  • Handavinnuherbergið opið, létt spjall í stofunni, spilað ef það næst í spilahóp og unnið að ýmsum öðrum verkefnum
  • Kaffi og meðlæti kr. 700

Ásamt þessari föstu dagskrá eru ýmsar uppákomu í Eyraseli s.s. kótelettukvöld, þorrablót o.fl.