Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Félags­mið­stöðv­arnar Vest-End og Dímon auglýsa eftir starfs­fólki

Félags­mið­stöðin Vest–End á Patreks­firði auglýsir eftir umsjón­ar­manni og starfs­manni og félags­mið­stöðin Dímon á Bíldudal auglýsir eftir umsjón­ar­manni.


Skrifað: 24. ágúst 2023

Starfsauglýsingar

Félagsmiðstöðvarnar eru opnar tvö kvöld í viku tvo tíma í senn og er starfið aðallega ætlað fyrir unglinga á unglingastigi grunnskóla. Á Patreksfirði hefur verið starfrækt ,,litla“ Vest-End sem er fyrir börn á miðstigi.

Félagsmiðstöðvarnar á sunnanverðum Vestfjörðum starfa náið saman og eru sameiginlegir viðurðir haldnir reglulega.

Hæfniskröfur

  • Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri
  • Reynsla í vinnu með unglingum æskileg
  • Sjálfstæð vinnubrögð, stundvísi og jákvætt viðmót skilyrði
  • Áhugi fyrir að efla unglingastarf á svæðinu æskilegur

Laun og starfskjör eru í samræmi við kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttafélags. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafa öllum umsóknum.

Frekari upplýsingar veitir Arnheiður Jónsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, og tekur hún einnig á móti umsóknum.

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs

Arnheiður Jónsdóttir arnheidur@vesturbyggd.is / 450 2300