Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Félags­þjón­ustan auglýsir laus störf á Bíldudal

Félags­þjón­usta Vestur-Barða­strand­ar­sýslu auglýsir eftir starfs­manni í skemmti­legt og spenn­andi starf í félags­starfi aldr­aðra í Læk á Bíldudal.


Skrifað: 9. ágúst 2018

Starfsauglýsingar

Unnið er í gefandi og skapandi umhverfi og þarf viðkomandi að geta unnið sjálfstætt og jafnframt í samstarfi við aðra. Áhugasömum er bent á að hafa samband við undirritaða, viðkomandi þarf að geta hafið störf í september.

Heimaþjónusta
Félagsþjónusta Vestur-Barðastrandarsýslu auglýsir eftir starfsmanni til að sinna heimaþjónustu á Bíldudal. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í september.

Hægt er að sinna þessum störfum saman þar sem þau eru hlutastörf ef áhugi er fyrir því.

Frekari upplýsingar gefur undirrituð og umsóknir sendist til arnheidur@vesturbyggd.is