Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 4 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.
Ferjan Baldur í slipp
Siglt verður til Reykjavíkur á laugardaginn og vinna hefst strax á sunnudeginum. Um er að ræða hefðbundna og reglubundna slipptöku sem framkvæmd er á þurru landi annað hvert ár.
Eins og áður hefur komið fram gera áætlanir ráð fyrir um 2 vikum í slipp og þá að ferjan verði komin aftur í áætlun mánudaginn 17. maí.
Í fjarveru Baldurs mun farþegaskip Sæferða, Særún sigla til Flateyjar skv. meðfylgjandi plani:
| frá Stykkishólmi | frá Flatey | |
| sun. 2. maí | 15:00 | 17:00 |
| þrið 4. maí | 15:00 | 17:00 |
| föst 7. maí | 15:00 | 17:00 |
| sun 9. maí | 15:00 | 17:00 |
| þrið 11. maí | 15:00 | 17:00 |
| föst 14.maí | 15:00 | 17:00 |
| laug 15.maí | 13:30 | 15:30 |
| sun 16. maí | 15:00 | 17:00 |