Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir næstum 3 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Ferjan Baldur í slipp

Breiða­fjarð­ar­ferjan Baldur fer í slipp um næstu helgi.


Skrifað: 29. apríl 2021

Auglýsingar

Siglt verður til Reykjavíkur á laugardaginn og vinna hefst strax á sunnudeginum. Um er að ræða hefðbundna og reglubundna slipptöku sem framkvæmd er á þurru landi annað hvert ár.

Eins og áður hefur komið fram gera áætlanir ráð fyrir um 2 vikum í slipp og þá að ferjan verði komin aftur í áætlun mánudaginn 17. maí.

Í fjarveru Baldurs mun farþegaskip Sæferða, Særún sigla til Flateyjar skv. meðfylgjandi plani:

frá Stykkishólmi frá Flatey
sun. 2. maí 15:00 17:00
þrið  4. maí 15:00 17:00
föst  7. maí 15:00 17:00
sun   9. maí 15:00 17:00
þrið 11. maí 15:00 17:00
föst  14.maí 15:00 17:00
laug  15.maí 13:30 15:30
sun   16. maí 15:00 17:00