Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 4 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Fjár­hags­áætlun Vest­ur­byggðar 2020-2023

Fjár­hags­áætlun Vest­ur­byggðar fyrir árið 2020 er lögð fram og unnin í samræmi við ákvæði sveit­ar­stjórn­ar­laga nr. 138/2011. Samkvæmt 3. mgr. 62. gr. sveit­ar­stjórn­ar­laga skal bæjarráð Vest­ur­byggðar leggja fram tillögu að fjár­hags­áætlun og var það gert á 885. fundi bæjar­ráðs 20.nóvember 2019. Fyrri umræða fjár­hags­áætl­unar fór fram 25. nóvember 2019 og seinni umræða 11.desember 2019, þar sem bæjar­stjórn Vest­ur­byggðar afgreiddi fjár­hags­áætlun fyrir árið 2020 og næstu þrjú ár á eftir, árin 2021, 2022 og 2023.


Skrifað: 12. desember 2019

Helstu niðurstöður áætlunarinnar eru að heildarrekstrartekjur, skatttekjur og aðrar tekjur, eru áætlaðar 1.687 millj.kr. en heildarrekstrarútgjöld 1.475 millj.kr. fyrir fjármagnsliði, sem eru áætlaðir 85 millj.kr. Reiknaðir liðir, sem eru afskriftir, verðbætur á langtímalána og breytingar áfallinna lífeyrisskuldbindinga, eru áætlaðir 57 millj.kr. Reksturinn skilar 173 millj.kr. samkvæmt niðurstöðu sjóðstreymis (handbært fé frá rekstri). Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs og stofnana er jákvæð um 126 millj.kr.

Eignfærðar fjárfestingar eru áætlaðar 195,5 millj.kr. vegna framkvæmda við grunn- og leikskóla, götur, gangstéttir, göngustíga og lóðir, endurbætur og stofnviðhald á friðuðum húsum og ýmsu öðru húsnæði, framkvæmdir við Bíldudalshöfn, vatnsveitu auk ofanflóðavarna.

Afborganir langtímalána eru áætlaðar 213 millj.kr. og nýjar lántökur 143 millj.kr.

Fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir að skuldaviðmið sveitarfélagsins verði 94,3% og skuldahlutfall verði 120,2 % í árslok 2020.