Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir næstum 4 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Forseta­kosn­ingar 2020

Upplýs­ingar um utan­kjör­fund, kjör­fund, viðmið­un­ardag kjör­skrár og kosn­inga­rétt.


Skrifað: 18. júní 2020

Fréttir

Utankjörfundur fer fram hjá Sýslumanninum á Patreksfirði, Aðalstræti 92, virka daga kl. 9:30 – 12:00 og 13:00 – 14:00.

Kjörfundur fer fram í laugardaginn 27. júní 2020 á eftirtöldum stöðum:

  • Félagsheimili Patreksfjarðar – Aðalstræti 107, Patreksfirði, frá kl. 10.
  • Baldurshagi – Tjarnarbraut 4, Bíldudal, frá kl. 12.
  • Birkimel – Krossholtum, Barðaströnd, frá kl. 12.

Kjörskrá var lögð fram í Ráðhúsi Vesturbyggðar 18. júní 2020. Þjóðskrá Íslands hefur opnað fyrir rafrænan aðgang að kjörskrá á vefnum www.skra.is.

Viðmiðunardagur kjörskrár var 6. júní 2020.

Kosningarétt eiga allir íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag og sem skráðir eru með lögheimili hér á landi. Íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri og flutt hafa erlendis eiga kosningarétt í átta ár frá flutningnum. Eftir þann tíma þurfa þessir aðilar að sækja um að vera teknir á kjörskrá hjá Þjóðskrá Íslands. Ef viðkomandi er ekki með gilda umsókn, átta ár eða meira eru liðin frá flutningi og engin umsókn barst Þjóðskrá Íslands fyrir 1. desember 2019 er viðkomandi ekki á kjörskrá. Nánari upplýsingar eru á vefnum www.kosning.is.

Kjósandi skal gera kjörstjórn grein fyrir sér, svo sem með því að segja til sín og framvísa kennivottorði eða nafnskírteini, eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjórnar.

Kjörstjórn óskar eftir að kjósendur taki ekki með sér síma eða önnur ljósmyndatæki inn í kjörklefa þar sem það er óheimilt að ljósmynda kjörseðil og varðar sektum ef kjósandi sýnir af ásettu ráði hvernig hann kýs eða hefur kosið.