Hoppa yfir valmynd

Forseta­kosn­ingar 2024

Kosn­ingar til embættis forseta Íslands í Sameinuðu sveit­ar­fé­lagi Tálkna­fjarð­ar­hrepps og Vest­ur­byggðar


Skrifað: 24. maí 2024

Kosið verður laugardaginn 1. júní 2024 sem hér segir:

  • Patreks­fjörður – Kosið í safnaðarheimilinu Aðalstræti 52. Kjör­deildin opnar kl. 10:00.
    • Athygli er vakin á breyttum kjörstað frá því sem verið hefur.
  • Bíldu­dalur – Kosið í félags­heim­ilinu Bald­urs­haga. Kjör­deildin opnar kl. 10:00.
  • Kross­holt – Kosið í Birki­mels­skóla á Barða­strönd. Kjör­deildin opnar kl. 10:00.
  • Tálknafjörður – Kosið  í Tálknafjarðarskóla. Kjördeildin opnar kl. 10:00.

Íbúar fyrrum Rauðasands­hrepps eru skráðir í kjör­deild­inni á Patreks­firði.

Rafrænn aðgangur að kjörskrá má nálgast á vef Þjóðskrár auk þess sem kjörskrá liggur frammi í Ráðhúsi Vesturbyggðar á skrifstofutíma.

Lokun kjörstaða
Samkvæmt 91. gr. kosningarlaga nr. 112/2021 má ekki slíta kjörfundi fyrr en átta klukkustundir eru liðnar frá því að hann hófst og ekki fyrr en hálf klukkustund er liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram. Kjörfundi má þó slíta er allir sem á kjörskrá standa hafa greitt atkvæði og eftir fimm klukkustundir ef öll kjörstjórnin og umboðsmenn eru sammála um það, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram. Kjörfundi skal þó slíta eigi síðar en kl. 22 á kjördag. Þeir kjósendur sem hafa gefið sig fram fyrir þann tíma eiga þó rétt á að greiða atkvæði.

Kjósendur eru hvattir til að mæta snemma á kjörstað þar sem hátíðahöld í tilefni af Sjómannadeginum eru í fullum gangi alla helgina og því mikið um að vera. Reynt verður því að loka kjörstöðum eins fljótt og lög heimila, sérstaklega á Patreksfirði þar sem dagskrá er í gangi allan daginn.

Yfirkjörstjórn verður með aðstöðu í ráðhúsi Vesturbyggðar á meðan á kosningu stendur.

Yfirkjörstjórn:

Finnbjörn Bjarnason

Sigurvin Hreiðarsson

Edda Eiríksdóttir