Forstöðumaður Vest-End á Patreksfirði
Vesturbyggð auglýsir eftir forstöðumanni í félagsmiðstöðina Vest-End á Patreksfirði. Um er að ræða alla umsjón með félagsmiðstöðinni veturinn 2023-2024 hið minnsta.
Starfið felst í skipulagningu á innra starfi Vest-End sem og þrifum og þess háttar. Félagsmiðstöðin er opin tvö kvöld í viku í tvo tíma í senn og er starfið ætlað fyrir unglinga úr 8.-10.bekk en fá 7.bekkingar að mæta einu sinni í viku á sérstaklega auglýsta viðburði. Jafnframt hefur verið starfrækt ,,litla“ Vest-End sem er fyrir börn á miðstigi.
Félagsmiðstöðvar á sunnanverðum Vestfjörðum starfa náið saman og sameiginlegir viðburðir eru haldnir einu sinni í mánuði.
Hæfniskröfur
- Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri
- Reynsla í vinnu með unglingum æskileg
- Sjálfstæð vinnubrögð, stundvísi og jákvætt viðmót skilyrði
- Áhuga fyrir að efla unglingastarf á svæðinu æskilegur
Laun og starfskjör eru í samræmi við kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttafélags. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafa öllum umsóknum.
Frekari upplýsingar veitir Hafdís Helga Bjarnadóttir, tómstundafulltrúi, og tekur hún einnig á móti umsóknum.