Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Forstöðu­maður Vest-End á Patreks­firði

Vest­ur­byggð auglýsir eftir forstöðu­manni í félags­mið­stöðina Vest-End á Patreks­firði. Um er að ræða alla umsjón með félags­mið­stöð­inni veturinn 2023-2024 hið minnsta.


Skrifað: 6. nóvember 2023

Starfsauglýsingar

Starfið felst í skipulagningu á innra starfi Vest-End sem og þrifum og þess háttar. Félagsmiðstöðin er opin tvö kvöld í viku í tvo tíma í senn og er starfið ætlað fyrir unglinga úr 8.-10.bekk en fá 7.bekkingar að mæta einu sinni í viku á sérstaklega auglýsta viðburði. Jafnframt hefur verið starfrækt ,,litla“ Vest-End sem er fyrir börn á miðstigi.

Félagsmiðstöðvar á sunnanverðum Vestfjörðum starfa náið saman og sameiginlegir viðburðir eru haldnir einu sinni í mánuði.

Hæfniskröfur

  • Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri
  • Reynsla í vinnu með unglingum æskileg
  • Sjálfstæð vinnubrögð, stundvísi og jákvætt viðmót skilyrði
  • Áhuga fyrir að efla unglingastarf á svæðinu æskilegur

Laun og starfskjör eru í samræmi við kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttafélags. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafa öllum umsóknum.

Frekari upplýsingar veitir Hafdís Helga Bjarnadóttir, tómstundafulltrúi, og tekur hún einnig á móti umsóknum.