Forstöðumaður Vest-End á Patreksfirði
Vesturbyggð auglýsir eftir forstöðumanni í félagsmiðstöðina Vest-End á Patreksfirði. Um er að ræða alla umsjón með félagsmiðstöðinni veturinn 2021-2022 hið minnsta.
Skrifað: 20. september 2021
Starfið felst í skipulagningu á innra starfi Vest-End sem og þrifum og þess háttar. Félagsmiðstöðin er opin tvö kvöld í viku í tvo tíma í senn og er starfið ætlað fyrir unglinga úr 8.-10.bekk en fá 7.bekkingar að mæta einu sinni í viku á sérstaklega auglýsta viðburði.
Félagsmiðstöðvar á sunnanverðum Vestfjörðum starfa náið saman og sameiginlegir viðburðir eru haldnir einu sinni í mánuði.
- Kaup og kjör fara eftir kjarasamningum Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum
- Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri
- Fyrra starf og/eða nám nýtist í starfi er kostur
- Sjálfstæð vinnubrögð, stundvísi og jákvætt viðmót skilyrði
Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2021
Nánari upplýsingar veita Guðný Lilja Pálsdóttir, íþrótta og tómstundafulltrúi og Arnheiður Jónsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs.