Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 1 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Frí blóð­syk­ur­mæling á vegum Lions

Fimmtu­daginn 24. nóvember n.k. munu Lions­klúbbur Patreks­fjarðar bjóða fólki upp á fría blóð­syk­ur­mæl­ingu. Heil­brigð­is­stofnun Vest­fjarða á Patreks­firði er öflugur bakhjarl þessa verk­efnis og útvegar það sem til þarf í mælinguna. Mælingin fer fram á Hvest Patreks­firði fimmtu­daginn 24. nóvember 2022 milli kl. 16:00 og 18:00.

 


Skrifað: 22. nóvember 2022

Auglýsingar

Sykursýki (diabetes mellitus) er efnaskiptasjúkdómur sem einkennist af of háum blóðsykri, sem stafar annaðhvort af of litlu magni insúlíns í blóði eða af óeðlilegri virkni insúlíns ásamt því að magn þess sé of lítið. Algengustu einkennin eru þorsti, tíð þvaglát og sjóntruflanir.

Tegund tvö af sykursýki fyrirfinnst í flestum tilfellum í eldra fólki, en er þó farið að finnast í yngri kynslóðum með hækkandi tíðni offitu í heiminum. Meðferð við sykursýki af tegund tvö er í byrjun oftast breytt mataræði og góð líkamleg hreyfing. En þegar sjúkdómurinn er kominn lengra getur lyfjagjöf verið nauðsynleg.

Þegar fólk mætir í blóðsykurmælingu, sem er einföld í framkvæmd, fæst úr því skorið hvert blóðsykurgildið er. Stungið er í fingurgóm og teknir nokkrir blóðdropar, sem settir eru á strimil og niðurstaðan fæst svo til strax. Ef niðurstaðan er á þann veg að viðkomandi er með háan
blóðsykur, þá er honum umsvifalaust bent á að ræða við heimilislækni sinn.

Þann 14. nóvember ár hvert er alþjóðlegur sykursýkisvarnadagur Lionshreyfingarinnar. Í tæp sextíu ár hefur það verið baráttumál
Lionshreyfingarinnar að fræða fólk um sjúkdóminn og finna þá sem ganga með dulda sykursýki.

Með þessu átaki viljum við í Lionsklúbbi Patreksfjarðar stuðla að betri forvörnum og hjálpa til við að finna þá sem eru með þennan sjúkdóm á
byrjunarstigi.

f.h. Lionsklúbbs Patreksfjarðar