Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Tómstunda­full­trúi

Vest­ur­byggð og Tálkna­fjarð­ar­hreppur auglýsa hér með eftir tómstunda­full­trúa í 100% starf á sunn­an­verðum Vest­fjörðum. Leitað er að metn­að­ar­fullum einstak­lingi til að halda uppi góðu og faglegu starfi í tómstunda­málum fyrir alla aldurs­hópa.


Skrifað: 23. ágúst 2023

Starfsauglýsingar

Ráðningasamband er við Vesturbyggð og er næsti yfirmaður sviðsstjóri fjölskyldusviðs Vesturbyggðar.

Meginverkefni

  • Heldur utan um verkefni er varða eflingu íþrótta og tómstundastarfs.
  • Vinnur að framkvæmd sveitarfélaganna á sviði íþrótta og tómstunda.
  • Kemur að vinnslu verkefna er varða lýðheilsu á vegum sveitarfélaganna og skal hafa frumkvæði að samskiptum og aðgerðum til að styrkja íþrótta- og tómstundamál á sunnanverðum Vestfjörðum.
  • Hefur yfirumsjón með íþróttaskóla sveitarfélaganna og kennir þar ef þörf er á.
  • Hefur umsjón með íþróttavöllum í sveitarfélögunum.
  • Heldur utan um sameiginleg verkefni m.a. almenningssamgöngur á sunnanverðum Vestfjörðum.
  • Hefur yfirumsjón með starfsemi félagsmiðstöðva og heldur utan um vinnuskóla sveitarfélaganna.
  • Starfar með ungmennaráðum sveitarfélaganna.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi skilyrði, svo sem á sviði kennslu, íþrótta eða tómstunda
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
  • Reynsla og þekking á þjálfun kostur
  • Íslenskukunnátta í ræðu og riti skilyrði
  • Enskukunnátta æskileg
  • Rík krafa um frumkvæði og framkvæmdagleði
  • Sjálfstæði í störfum og góð skipulagshæfni
  • Rík og góð samskiptahæfni og þjónustulund við alla aldurshópa
  • Jákvæðni og aðlögunarhæfni

Umsóknarfrestur er til og með 25. september 2023

Laun eru samkvæmt samningum sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf  sem allra fyrst. Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnheiður Jónsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs í síma 450 2300 eða arnheidur@vesturbyggd.is.

Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun, starfsferil og fleira skal senda netfangið vesturbyggd@vesturbyggd.is merkt: Umsókn –  tómstundafulltrúi.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu í starfið. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs

Arnheiður Jónsdóttir arnheidur@vesturbyggd.is / 450 2300