Hoppa yfir valmynd

Fyrir­komulag kosn­inga

Saman­tekt á upplýs­ingum um fyrir­komulag kosn­inga um samein­ingu Vest­ur­byggðar og Tálkna­fjarð­ar­hrepps.


Skrifað: 13. október 2023

Auglýsingar

Má ég kjósa?

Kosningarétt hafa þau sem náð hafa 16 ára aldri 28. október 2023. Norrænir ríkisborgarar hafa einnig kosningarétt ásamt erlendum ríkisborgurum sem hafa átt lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt þann 28. október 2023. Opnað hefur verið fyrir uppflettingu á kjörskrá hjá Þjóðskrá Íslands á síðunni hér.

Hvar og hvenær á ég að kjósa?

Frá 9. október til 27. október er kosið í Ráðhúsi Vesturbyggðar á opnunartíma ráðhússins sem er eftirfarandi:
Mánudaga til fimmtudaga: 10:00–12:30 // 13:00–15:00
Föstudaga: 10:00–13:00

Laugardaginn 28. október verður kosið með hefðbundnum hætti milli 12:00–18:00 í þremur kjördeildum og þurfa íbúar að mæta á kjörstað í sinni kjördeild. Kosið verður á eftirfarandi stöðum:

  • Félagsheimilinu Baldurshaga – Bíldudal
  • Félagsheimili Patreksfirðinga – Patreksfirði
  • Félagsheimilinu Birkimel – Barðaströnd

Hvað ef ég sé mér ekki fært að mæta á kjörstað?

Sjái íbúi sér ekki fært að mæta á kjörstað á kjörtímabilinu er hægt að óska eftir því að greiða atkvæði sitt með póstkosningu. Slík beiðni skal berast skrifstofum sveitarfélaganna í tölvupósti eða í síma og skal taka fram hvort kjörgögn eigi að berast til viðkomandi aðila í almennum bréfpósti eða í tölvupósti. Sé kosið í póstkosningu ber íbúi ábyrgð á að koma kjörseðli á kjörstað fyrir lokun kjörstaða, 28. október kl. 18:00.

Kjósendur í Vesturbyggð geta sent beiðni á netfangið sameining@vesturbyggd.is eða í síma 450-2300

Kosningafyrirkomulag

Við kosningarnar er farið eftir reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga nr. 922/2023 en reglurnar eru að mörgu leyti sambærilegar kosningalögum en helstu breytingarnar fela í sér að boðið er upp á póstkosningu og færanlegan kjörstað í stað utankjörfundaratkvæðagreiðslu. Einnig er ekki um einn eiginlegan kjördag að ræða heldur er tímabil atkvæðagreiðslu frá 9. október til 28. október. Í reglugerðinni kemur skýrt fram að kjörseðlar megi ekki vera auðkenndir með þeim hætti að þeir séu rekjanlegir til kjósanda. Er því ekki hægt rekja atkvæði til einstakra kjósenda jafnvel þótt atkvæði sé greitt með póstkosningu. Kjósendur sem nýta sér póstkosningu þurfa þó að tryggja að farið sé eftir leiðbeiningum svo atkvæðið sé sannarlega ekki rekjanlegt til kjósanda. Það þýðir að atkvæði er sett í ómerkt umslag sem er lokað og það umslag ásamt fylgiseðli er sett í annað umslag sem skilað er til kjörstjórnar.