Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 4 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Fyrir­tækja­könnun lands­hlut­anna

Vest­fjarða­stofa er þátt­tak­andi í fyrir­tækja­könnun lands­hlut­anna sem Vífill Karlsson hjá Samtökum sveit­ar­fé­laga á Vest­ur­landi hefur unnið um nokk­urra ára skeið. Könn­unin hefur verið send út á fyrir­tæki á svæðinu, allt frá einyrkjum til stærri fyrir­tækja. Í könn­un­inni er leitað eftir viðhorfi forsvars­manna fyrir­tækja á lands­byggð­inni til núver­andi stöðu þeirra og fram­tíð­ar­horfa.


Skrifað: 13. desember 2019

Auglýsingar

Þátttaka í könnuninni var góð á Vestfjörðum í fyrra og veitti gagnlegar upplýsingar.

Í ár lítur hins vegar út fyrir að hún verði mjög dræm. Upplýsingarnar eru mikilvægar til þess að sjá hvar styrkleikar og veikleikar atvinnulífs á Vestfjörðum liggja og er liður í að bæta þjónustu gagnvart fyrirtækjum á svæðinu.

Forsvarsfólk fyrirtækja er hvatt til að taka þátt svo unnt sé að fá góða mynd af stöðunni á Vestfjörðum.