Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Grenja­leit og grenja­vinnsla í Vest­ur­byggð

Vest­ur­byggð auglýsir eftir aðilum til grenja­leitar og grenja­vinnslu í Vest­ur­byggð.


Skrifað: 18. apríl 2023

Starfsauglýsingar

Til greina kemur að ráða fleiri en einn aðila innan hvers svæðis og skal tekið fram í umsókn um hvaða svæði er sótt. Ákvörðun um ráðningu verður tekin eftir að umsóknarfresti lýkur og miðað er við að umsækjendur hefji störf skv. samkomulagi.

Minnt er á að viðkomandi þarf að hafa gilt skotvopnaleyfi og veiðikort sem framvísa þarf við samning.

Vesturbyggð vekur athygli á því að ráðnir veiðimenn geta einir skilað reikningum og aðeins þeir sem hafa undirritaðan samning við Vesturbyggð fá greitt fyrir refaskott.

Reikningum skal skila fyrir 1. september 2023 og verður ekki greitt fyrir grenjavinnslu eftir þann tíma.

Skilavottorð frá þjónustumiðstöðvum um fjölda skotta er grundvöllur skilagjalds.

Óskað er eftir umsækjendum fyrir fimm svæði, skv. gömlu hreppaskiptingunni.

  • Rauðasandshreppur
  • Patrekshreppur
  • Barðastrandahreppur
  • Suðurfjarðahreppur
  • Ketildalahreppur

Umsóknarfrestur er til og með 2. maí 2023

Umsóknir skal merkja „Grenjavinnsla 2023“ og er hægt að skila með netpósti á vesturbyggd@vesturbyggd.is eða með bréfpósti

Vesturbyggð

b.t. Sviðstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs.

Aðalstræti 75

450 Patreksfirði

Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs

Geir Gestsson geir@vesturbyggd.is / 450 2300