Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir næstum 5 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Grenja­vinnsla

Vest­ur­byggð auglýsir öðru sinni eftir aðilum til grenja­leita og grenja­vinnslu í Vest­ur­byggð.


Skrifað: 14. maí 2019

Auglýsingar

Tekið er við umsóknum til 17. maí næst­kom­andi.

Óskað er eftir umsækjendum fyrir þrjú svæði, skv. gömlu hreppaskiptingunni.

  1. Patrekshreppur
  2. Barðastrandarhreppur – ytri, frá Stálfjalli að Móruá
  3. Suðurfjarðahreppur

Til greina kemur að ráða fleiri en einn aðila innan hvers svæðis og skal tekið fram í umsókn um hvaða svæði er sótt.

Ákvörðun um ráðningu verður tekin eftir að umsóknarfresti lýkur og miðað er við að umsækjendur hefji störf skv. samkomulagi.

Vesturbyggð vekur athygli á því að ráðnir veiðimenn geta einir skilað reikningum og aðeins þeir sem hafa undirritaðann samning við Vesturbyggð fá greitt fyrir refaskott. Reikningum skal skila fyrir 1. september 2019 og verður ekki greitt fyrir grenjavinnslu eftir það.

Vesturbyggð hefur ákveðið að ganga frá samningum við eftirtala aðila um grenjavinnslu á öðrum svæðum:

 Ketildalahreppur – Víðir Guðbjartsson

 Barðastrandarhreppur

  • Innri Barðaströnd frá Móruá að Kjálkafirði – Ísak Jansson

Rauðasandshreppur

  • Frá Stálfjalli að Suðurfossaá (Skor, Sjöundaá og Melanes) – Ástþór Skúlason
  • Frá Suðurfossaá að landamerkjum Naustabrekku og Keflavíkur – Gunnar Guðmundsson
  • Breiðavík, Keflavík, Geitagil, Hænuvík og Sellátranes – Keran St. Ólason
  • Kollsvík að Keflavík (Kollsvík, Láganúpur, Hvallátur, Bæjarbjarg) og Botnsá að Sellátranesi – Kristinn Guðmundsson