Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir næstum 2 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Grenja­vinnsla 2022

Vest­ur­byggð auglýsir eftir aðilum til grenja­leitar og grenja­vinnslu í Vest­ur­byggð. Tekið er við umsóknum til og með 6. maí næst­kom­andi.


Skrifað: 26. apríl 2022

Auglýsingar

Óskað er eftir umsækjendum fyrir fimm svæði, skv. gömlu hreppaskiptingunni.

  1. Rauðasandshreppur
  2. Patrekshreppur
  3. Barðastrandahreppur
  4. Suðurfjarðahreppur
  5. Ketildalahreppur

Til greina kemur að ráða fleiri en einn aðila innan hvers svæðis og skal tekið fram í umsókn um hvaða svæði er sótt. Ákvörðun um ráðningu verður tekin eftir að umsóknarfresti lýkur og miðað er við að umsækjendur hefji störf skv. samkomulagi.

Minnt er á að viðkomandi þarf að hafa gilt skotvopnaleyfi og veiðikort sem framvísa þarf við samning.

Umsóknir skal merkja „Grenjavinnsla 2022“ og er hægt að skila með netpósti á vesturbyggd@vesturbyggd.is eða með bréfpósti

Vesturbyggð
b.t. Sviðstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs.
Aðalstræti 75
450 Patreksfirði

Vesturbyggð vekur athygli á því að ráðnir veiðimenn geta einir skilað reikningum og aðeins þeir sem hafa undirritaðan samning við Vesturbyggð fá greitt fyrir refaskott.

Reikningum skal skila fyrir 1. september 2022 og verður ekki greitt fyrir grenjavinnslu eftir þann tíma.

Skilavottorð frá þjónustumiðstöðvum um fjölda skotta er grundvöllur skilagjalds.

Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs

Geir Gestsson geir@vesturbyggd.is / 450 2300