Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir næstum 5 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.
Grenjavinnsla
Vesturbyggð auglýsir eftir aðilum til grenjaleita og grenjavinnslu í Vesturbyggð. Tekið er við umsóknum til 30. apríl næstkomandi.
Skrifað: 23. apríl 2019
Óskað er eftir umsækjendum fyrir fimm svæði, skv. gömlu hreppaskiptingunni.
- Rauðasandshreppur
- Patrekshreppur
- Barðastrandarhreppur
- Suðurfjarðahreppur
- Ketildalahreppur
Til greina kemur að ráða fleiri en einn aðila innan hvers svæðis og skal tekið fram í umsókn um hvaða svæði er sótt.
Ákvörðun um ráðningu verður tekin eftir að umsóknarfresti lýkur og miðað er við að umsækjendur hefji störf í byrjun maí, skv. samkomulagi.