Grenndarkynning - Hafnarbraut 8
Hér með boðar bæjarstjórn Vesturbyggðar til grenndarkynningar vegna byggingarleyfis Hafnarbrautar 8 á Bíldudal í samræmi við ákvæði 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynning felst í því að nágrönnum sem taldir eru geta átt hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að tjá sig um breytingar í þegar byggðu hverfi þar sem ekki liggur fyrir deiliskipulag.
Á 88. fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 13.09.2021 var fjallað um erindið. Byggingaráformin skal grenndarkynna fyrir Hafnarbraut 6 og 10, Dalbraut 7 og 9
Frestur til að skila athugasemdum og ábendingum er 4 vikur frá ætlaðri móttöku þessa bréfs, þ.e. til og með 18. október 2021. Litið verður svo á að þeir sem ekki gera athugasemdir séu samþykkir áformunum.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Vesturbyggðar eða í síma 450 2300 á opnunartíma skrifstofunnar, virka daga kl. 10-12.30 og 13-15. Fyrirspurnir má einnig senda á netfangið vesturbyggd@vesturbyggd.is.
Athugasemdum má skila á vesturbyggd@vesturbyggd.is eða í bréfpósti, þá merkt:
Vesturbyggð
Aðalstræti 75
450 Vesturbyggð
Athugasemdum skal skila inn fyrir 20. október 2021.