Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 3 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Grennd­arkynning - Langa­hlíð 16a og 16b

Bæjar­stjórn Vest­ur­byggðar hefur ákveðið að láta fara fram grenndar­kynn­ingu vegna bygg­ingaráforma við Löngu­hlíð 16a og b á Bíldudal.


Skrifað: 4. september 2020

Skipulög í auglýsingu

Bæjarstjórn Vesturbyggðar hefur ákveðið að láta fara fram grenndar­kynningu í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna byggingaráforma við Lönguhlíð 16a og b á Bíldudal.

Frestur til að skila athugasemdum og ábendingum er 4 vikur eða til og með 5. október 2020. Litið verður svo á að þeir sem ekki gera athugasemdir séu samþykkir fyrirhuguðum áformum.

Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Vesturbyggðar eða í síma 450 2300 á opnunartíma skrifstofunnar, virka daga kl. 10-12.30 og 13-15. Fyrirspurnir má einnig senda á netfangið vesturbyggd@vesturbyggd.is.

Skipulagsfulltrúi

Óskar Örn Gunnarsson
oskar@landmotun.is / 575 5300