Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 3 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Grennd­arkynn­ingar við Bala á Patreks­firði


Skrifað: 15. janúar 2021

Skipulög í auglýsingu

Balar 9-11, grenndarkynning 

Á 80. fundi skipulags- og umhverfisráðs Vesturbyggðar 14.1.2021 sl., var samþykkt að grenndarkynna byggingaráform í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Óskað er eftir að fá að reisa 251,8 m2 parhús við Bala 9-11 (hvor íbúð er 125,9m2), Patreksfirði. Svæðið er skilgreint sem íbúðarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi Vesturbyggðar.

Meðfylgjandi eru kynningargögn þar sem sjá má áformin á afstöðumynd  og útlitsteikningum. Þá er hægt að nálgast gögnin hér fyrir neðan.

Uppdrættir eru einnig til sýnis í Ráðhúsi Vesturbyggðar að Aðalstræti 75 á Patreksfirði.

Að lokinni kynningu er umsækjanda heimilt að senda inn byggingarteikningar og fær byggingarleyfi standist gögn reglugerð. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við áformin. Frestur til að senda athugasemdir er frá 15. janúar til og með 13. febrúar 2021.

Skila skal athugasemdum í Ráðhús Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, 450 Patreksfirði, eða rafrænt á vesturbyggd@vesturbyggd.is  merkt „Balar 9-11“ .

Ef frekari upplýsinga er óskað má hafa samband við Elfar Stein Karlsson, byggingarfulltrúa Vesturbyggðar á netfangið elfar@vesturbyggd.is eða í síma 849 7909.

Heimilt er að stytta tímabil grenndarkynningar hljótist undirritað samþykki íbúa fyrir áformunum, skv. 3. mgr., 44. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.

Kynningarbréf fá íbúar að Brunnum 8, 10, 12, 14, 16, 18, 20, og 22 Bölum 4,6, 17, 19, 21 og 23 og Aðalstræti 87A og 89.

Balar 13-15, grenndarkynning 

Á 80. fundi skipulags- og umhverfisráðs Vesturbyggðar 14.1.2021 sl., var samþykkt að grenndarkynna byggingaráform í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Óskað er eftir að fá að reisa 251,8 m2 parhús við Bala 13-15 (hvor íbúð er 125,9m2), Patreksfirði. Svæðið er skilgreint sem íbúðarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi Vesturbyggðar.

Meðfylgjandi eru kynningargögn þar sem sjá má áformin á afstöðumynd og útlitsteikningum.

Uppdrættir eru einnig til sýnis í Ráðhúsi Vesturbyggðar að Aðalstræti 75. Þá er hægt að nálgast gögnin hér fyrir neðan.

Að lokinni kynningu er umsækjanda heimilt að senda inn byggingarteikningar og fær byggingarleyfi standist gögn reglugerð. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við áformin. Frestur til að senda athugasemdir er frá 15. janúar til og með 13. febrúar 2021.

Skila skal athugasemdum í Ráðhús Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, 450 Patreksfirði, eða rafrænt á vesturbyggd@vesturbyggd.is  merkt „Balar 13-15“ .

Ef frekari upplýsinga er óskað má hafa samband við Elfar Stein Karlsson, byggingarfulltrúa Vesturbyggðar á netfangið elfar@vesturbyggd.is eða í síma 849 7909.

Heimilt er að stytta tímabil grenndarkynningar hljótist undirritað samþykki íbúa fyrir áformunum, skv. 3. mgr., 44. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.

Kynningarbréf fá íbúar að Brunnum 8, 10, 12, 14, 16, 18, 20, og 22 Bölum 4,6, 17, 19, 21 og 23 og Aðalstræti 87A og 89.

Virðingarfyllst

Skipulagsfulltrúi

Óskar Örn Gunnarsson
oskar@landmotun.is / 575 5300