Grunnskólakennarar - Bíldudalsskóli
Grunnskólakennarar óskast við Bíldudalsskóla skólaárið 2023 – 2024.
Viltu vera hluti af metnaðarullum starfsmannahópi þar sem skapandi og fjölbreyttir kennsluhættir eru í fyrirrúmi? Bíldudalsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli með tvær starfsstöðvar á Bíldudal, Vesturbyggð; Bíldudalsskóla og leikskólann Tjarnarbrekku.
Einkunnarorð skólans eru: samskipti – samvinna – sköpun
Viltu vera hluti af metnaðarullum starfsmannahópi þar sem skapandi og fjölbreyttir kennsluhættir eru í fyrirrúmi? Bíldudalsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli með tvær starfsstöðvar á Bíldudal, Vesturbyggð; Bíldudalsskóla og leikskólann Tjarnarbrekku.
Einkunnarorð skólans eru: samskipti – samvinna – sköpun
Bíldudalsskóli leitar að áhugasömum og fjölhæfum kennurum sem geta unnið í teymi. Kennurum sem hefur áhuga á að taka þátt í gróskumiklu skólastarfi þar sem faglegt lærdómssamfélag, einstaklingsmiðað nám, leiðsagnarnám og samþætting námsgreina og grunnþættir menntunar endurspeglast í skólastarfinu. Bíldudalsskóli vinnur með Uppbyggingarstefnuna, vaxtarhugarfar og leiðsagnarnám.
1) 100 % kennarastaða á unglingastigi
Óskað er eftir kennara sem tekur að sér umsjónarkennslu á unglingastigi, sjónlistir þvert á skólastig, náttúru- og samfélagsfræðigreinar, erlend tungumál og fleira.
2) 100% kennarastaða
Óskað er eftir kennara sem tekur að sér kennslu þvert á skólastig, íþróttir, stærðfræði, náttúru- og samfélagsfræðigreinar og fleira.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leik- og grunnskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leik- og grunnskóla og menntastefnu Vesturbyggðar
- Að annast kennslu samkvæmt meginmarkmiðum aðalnámskrá grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda
- Að fylgjast með velferð nemenda, hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar
- Að taka þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skóla og sveitarfélags
Hæfnikröfur
- Hefur reynslu sem kennari á leik-, grunn-, eða framhaldsskólastigi
- Hefur leyfi til að nota starfsheitið kennari
- Hefur reynslu og áhuga á að starfa með börnum á leik- og grunnskólastigi
- Er lipur í samskiptum, sýnir jákvæðni og sveigjanleika í starfi
- Hefur faglegan metnað
- Sýnir frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Býr yfir færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum
- Er stundvís og þolinmóður
Umsóknarfrestur er til og með 14. apríl 2023
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.
Frekari upplýsingar um starfið gefur Lilja Rut Rúnarsdóttir, staðgengill skólastjóri/leikskólastjóri.