Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Grunn­skóla­kennari á yngsta stigi

Bíldu­dals­skóli er samrekinn leik- og grunn­skóli. Í grunn­skól­anum eru 23 nemendur og í leik­skól­anum eru 12 nemendur og fer fjölg­andi.


Skrifað: 11. janúar 2021

Starfsauglýsingar

Í Bíldudalsskóla er laus til umsóknar staða grunnskólakennari á yngsta stigi. Um er að ræða 100% stöðu.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til kennslu með sérstaka hæfni á yngsta stigi
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum
  • Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
  • Faglegur metnaður
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Áhugi á að starfa í teymiskennslu
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði

Helstu verkefni og ábyrgð í störfum leik- og grunnskólakennara:

Annast kennslu nemenda í samráði við skólastjóra, aðra kennara og foreldra. Vinna að þróun skólastarfs með skólastjóra og samkennurum. Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk. 

    Umsóknarfrestur er til og með 21. janúar 2021

    Viðkomandi þarf að geta hafið störf strax. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. 

    Upplýsingar gefur Signý Sverrisdóttir skólastjóri í síma 450 2333 eða 849 8976. Senda skal umsókn á netfangið signy@vesturbyggd.is og verður móttaka umsókna staðfest. 

    Bíldudalsskóli skólastjóri

    LRR

    Lilja Rut Rúnarsdóttir liljarut@vesturbyggd.is / 450 2333