Grunnskólakennari óskast við Bíldudalsskóla
Viltu vera hluti af metnaðarfullum starfsmannahópi þar sem skapandi og fjölbreyttir kennsluhættir eru í fyrirrúmi? Bíldudalsskóli er samrekinn leik – og grunnskóli með tvær starfsstöðvar á Bíldudal, Vesturbyggð; Bíldudalsskóla og leikskólann Tjarnarbrekku.
Einkunnarorð skólans eru: samskipti – samvinna – sköpun
Bíldudalsskóli leitar að áhugasömum og fjölhæfum kennara sem getur kennt þvert á skólastig. Kennara sem hefur áhuga á að taka þátt í gróskumiklu skólastarfi þar sem faglegt lærdómssamfélag, einstaklingsmiðað nám, leiðsagnarnám og samþætting námsgreina og grunnþættir menntunar endurspeglast í skólastarfinu. Bíldudalsskóli vinnur með Uppbyggingarstefnuna, vaxtarhugarfar og leiðsagnarnám.
Um er að ræða 50 – 70% starf.
Hæfniskröfur
- Hefur reynslu sem kennari á leik-, grunn-, eða framhaldsskólastigi
- Hefur leyfi til að nota starfsheitið kennari
- Hefur reynslu og áhuga á að starfa með börnum á leik- og grunnskólastigi
- Er lipur í samskiptum, sýnir jákvæðni og sveigjanleika í starfi
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra, fagaðila og yfirmann
- Hefur faglegan metnað
- Sýnir frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Býr yfir færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum
- Er stundvís og þolinmóður
Umsóknarfrestur er til og með 23. september 2022
Frekari upplýsingar um starfið gefur Elsa Ísfold Arnórsdóttir, skólastjóri/leikskólastjóri í síma 450 2333 og 699 3422, netfang elsa@vesturbyggd.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.