Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 2 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.
Heiðursborgari fagnar 90 ára afmæli sínu
Heiðursborgari Vesturbyggðar, Vilborg Kristín Jónsdóttir, ljósmóðir frá Bíldudal, fagnar 90 ára afmæli sínu í dag, 8. desember 2021. Af því tilefni sendi Vesturbyggð henni blómvönd og kveðjur frá sveitarfélaginu.
Skrifað: 8. desember 2021
Vilborg var gerð að heiðursborgara Vesturbyggðar í desember 2013. Það var gert til að sýna henni þakklæti fyrir lífsstarf hennar sem ljósmóðir og framlag hennar til samfélagsins í Vesturbyggð.
Vesturbyggð óskar Vilborgu til hamingju með stórafmælið.