Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 1 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Heilsu­efling með erindi í Muggs­stofu

Í dag, mánudag þann 10.október munum Ásgerður og Margrét, verk­efna­stjórar heilsu­efl­ingar 60+, koma í heim­sókn, vera með kynn­ingu fyrir eldri íbúa og taka fund með íbúum.

 


Skrifað: 10. október 2022

Auglýsingar

Staðsetning: Muggstofa, Strandgötu 7

Fundur hefst kl.17:00 – Kynning fyrir eldra fólkið hefst kl.18:00

Þessar upplýsingar setjum við inn á vefinn www.bjartlif.is til að gera upplýsingagjöf á hreyfingu fyrir eldra fólk á öllu landinu sýnilegra og aðgengilegra.

Ef skortur er á upplýsingum úr ykkar sveitarfélagi eða breytingar hafa orðið á núverandi hreyfiúrræðum viljum við biðja ykkur um að senda inn þær upplýsingar:  Senda inn framboð á hreyfingu hér

Hlökkum til að sjá sem flesta, kynna fyrir ykkur verkefnið Bjartur lífsstíll og ræða heilsueflingu eldra fólks í ykkar bæjar-/sveitarfélagi.

Fyrir þá sem ekki komast á fundinn þá er velkomið að finna staðgengil í ykkar stað. Auk þess ef það eru fleiri sem eiga heima á fundinum að bjóða þeim að mæta.

Bestu kveðjur,
Margrét og Ásgerður, verkefnastjórar heilsueflingar 60+