Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir u.þ.b. 3 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Hertar sótt­varn­ar­að­gerðir

Hertar sótt­varna­að­gerðir taka gildi á miðnætti og munu þær gilda í þrjár vikur. Almennar fjölda­tak­mark­anir miðast við 10 manns og ná til allra sem fæddir eru 2014 eða fyrr. Hertar aðgerðir munu hafa áhrif á stofn­anir sveit­ar­fé­lagsins.


Skrifað: 24. mars 2021

Fréttir

  • Grunnskólar í Vesturbyggð og Tónlistarskóli Vesturbyggðar verður lokað frá og með morgundeginum og þar til páskafrí tekur við.
  • Hertar sóttvarnaaðgerðir taka gildi á leikskólum í Vesturbyggð.
  • Íþróttamiðstöðin Bröttuhlíð, Patreksfirði og Byltu, Bíldudal eru lokaðar.
  • Íþróttir inni og úti jafnt barna sem og fullorðinna, sem krefjast meiri nálgæðar en 2 metrar eða hætta er á snertismiti vegna sameiginlegs búnaðar óheimilar.
  • Félagsstarf eldri borgara fellur niður.
  • Frístund er lokuð
  • Félagsmiðstöðvar eru lokaðar
  • Bókasafn er lokað
  • Muggsstofa er lokuð

Sóttvarnaraðgerðir sem taka gildi á miðnætti eru:

  • Nándarregla verður áfram 2 metrar og reglur um grímuskyldu óbreyttar. Sem fyrr verða börn fædd 2005 og síðar undanþegin grímuskyldu en falla undir fjölda- og nálægðartakmarkanir.
  • Börn í leikskólum eru undanþegin 2 metra reglunni og fjöldatakmörkunum.
  • Almennar fjöldatakmarkanir 10 manns og ná til allra sem fæddir eru 2014 eða fyrr.
  • Trú- og lífsskoðunarfélög mega taka á móti 30 gestum við athafnir. Þeir skulu skráðir með nafni, kennitölu og símanúmeri en þurfa ekki að sitja í númeruðum sætum. Gestum er skylt að nota andlitsgrímur og tryggja skal 2 metra regluna. Hámarksfjöldi í erfidrykkjum, fermingarveislum og sambærilegum viðburðum er 10 manns.
  • Sund- og baðstaðir lokaðir.
  • Heilsu- og líkamsræktarstöðvar lokaðar.
  • Íþróttir inni og úti, jafnt barna og fullorðinna, sem krefjast meiri nálægðar en 2 metra eða þar sem hætta er á snertismiti vegna sameiginlegs búnaðar, eru óheimilar.
  • Sviðslistir og sambærileg starfsemi, svo sem bíó, er óheimil.
  • Skemmtistaðir, krár, spilasalir og spilakassar lokaðir.
  • Ökunám og flugnám með kennara óheimilt.
  • Veitingastaðir mega hafa opið til kl. 22, með að hámarki 20 gesti í rými sem allir skulu skráðir og fá afgreiðslu í sæti sem eru númeruð. Vínveitingar skal bera til sitjandi viðskiptavina. Heimilt er að taka á móti nýjum gestum til kl. 21.00.
  • Verslanir mega taka á móti 5 einstaklingum á hverja 10 m2 að hámarki 50 manns. 20 starfsmenn mega vera í sama rými og viðskiptavinir. Tveggja metra nándarregla og grímuskylda.
  • Starfsemi hársnyrtistofa, snyrtistofa og sambærileg starfsemi verður áfram heimil.
  • Grunn-, framhalds-, tónlistar- og háskólum verður lokað frá og með morgundeginum og þar til hefðbundið páskafrí tekur við. Unnið verður að reglum um fyrirkomulag skólahalds að loknu páskafríi á næstu dögum.

Vesturbyggð ítreka mikilvægi þess að allir gæti fyllstu varúðar og sóttvarna

Tilkynning heilbrigðisráðuneytisins

Reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 191/2021, um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar