Hjólreiðakeppnin Arna Westfjords Way Challange
Miðvikudaginn 29. júní munu 65 hjólreiðakappar alls staðar að úr heiminum mæta á Ísafjörð til að hjóla tæplega 1.000 kílómetra um Vestfirði.
Keppnin er fyrsta sinnar tegundar og átak í að laða að og varpa ljósi á Vestfjarðaleiðina sem áfangastað fyrir reiðhjólaferðamennsku. 16 íslensk fyrirtæki styrkja keppnina þar af eru það Arna og 9 önnur fyrirtæki frá Vestfjörðum.
Keppnin er mikið þolraun sem reynir á hæfni, ákveðni og einbeitingu keppenda sem þurfa hjóla langar vegalengdir í gegnum stórfenglegt landslag Vestfjarða meðan þau berjast við náttúruöflin. Í hverjum hluta keppninnar þurfa keppendur að stoppa tvisvar á áhugaverðum áfangastöðum leiðarinnar og hafa því tækifæri til að upplifa og tengjast menningu Vestfjarða.
Keppni líkur að kvöldi 3. júlí þegar keppendur stökkva í höfnina við Kristjánsgötu.
Ef þið sjáið hjólreiðamenn á Vestfjarðaleiðinni á meðan keppni stendur, hvetjið þá áfram, sýnið aðgát og gefið þeim rými þegar þið takið fram úr þeim.
Dagskrá keppninnar
28. júní: Keppnissýning – Dokkan Brugghús
29. júní: Keppni hefst 7:00 Silfurtorgi, frá Ísafirði að Hótel Laugarhóli
30. júní: Frá Hótel Laugarhóli að Vogi Country Lodge Skarðsströnd
1. júlí: Vogur Country Lodge til Patreksfjarðar
2. júlí: Hvíld og ævintýradagur á Patreksfirði
3. júlí: Miðnæturstart og hjólað til Ísafjarðar – Lokahóf Dokkunni Brugghús