Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Hjúkr­un­ar­fræð­ingur á Patreks­firði

Óskað er eftir að ráða sjálf­stæðan hjúkr­un­ar­fræðing í 70 til 100% starf á Heil­brigð­is­stofnun Vest­fjarða á Patreks­firði.


Skrifað: 24. júní 2021

Starfsauglýsingar

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 250 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Þar af eru rúmlega 40 starfsmenn á Patreksfirði á heilsugæslu, legudeild, endurhæfingu og rekstrardeild. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum, sem meðal annars sást í að stofnunin var hástökkvari stórra stofnana í könnun um stofnun ársins árið 2019.

Helstu verkefni og ábyrgð

Störf hjúkrunarfræðinga á Patreksfirði eru fjölbreytt og vinna þeir með breiðum skjólstæðingahópi. Á stöðinni eru fjórir hjúkrunarfræðingar sem vinna saman í öflugu teymi á heilsugæslu og legudeild. Starfið hentar reynslumiklum hjúkrunarfræðingum og er einnig kjörið fyrir nýútskrifaða sem viljast öðlast fjölbreytta reynslu í alhliða hjúkrun.

    Hæfniskröfur

    • Fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi
    • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
    • Sveigjanleiki og sjálfstæði í starfi
    • Faglegur metnaður
    • Ökuréttindi eru nauðsynleg

    Umsóknarfrestur er til og með 12. júlí 2021

    Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

    Möguleiki er á að stofnunin aðstoði við öflun íbúðarhúsnæðis. Æskilegt er að störf hefjist 1. september 2021 eða eftir nánara samkomulagi. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði.

    Starfshlutfall er 70-100%. Nánari upplýsingar veitir Gerður Rán Freysdóttir – gerdur@hvest.is

    Hér er hægt að sækja um starfið