Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 2 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.
Hreinsun í Geirseyrargili
Í samráði við Ofanflóðasjóð er Vesturbyggð að hreinsa farveginn í Geirseyrargilinu af grjóti og jarðvegi niður að brúnni á Brunnunum.
Þjónustuvegurinn fyrir ofanflóðavarnargarðana hefur verið rofinn og rörið fjarlægt. Þjónustuvegurinn verður tekinn aftur í notkun með vorinu. Mikið af jarðvegi hefur safnast saman undir brúnni á Brunnum og reynt verður að hreinsa undan brúnni eins og hægt er.
Spáð er rigningu á föstudaginn og því er stefnt að því að undirbúa farveginn í Geirseyrargilinu undir mikið vatnsmagn.
Vegna veðurspár í upphafi vikunnar var ákveðið að halda íbúafundinn vegna krapaflóðsins 26. janúar s.l. ekki í þessari viku, við vonum að næsta vika verði með færri lægðum og meira logni.