Hoppa yfir valmynd

Hvað er að frétta af Brjáns­lækj­ar­höfn

Í liðnum Hvað er að frétt? í þessari viku segir hún Ólöf okkur frá starfi sínu sem hafn­ar­vörður á Brjáns­lækj­ar­höfin.


Skrifað: 15. maí 2024

Vorið er uppáhalds árstími margra. Þá er daginn tekið að lengja, það hlýnar í veðri, gróðurinn lifnar við og farfuglarnir keppast við að syngja eins og þeim einum er lagið.

Það lifnar líka yfir smábátahöfninni á Brjánslæk þegar bátarnir mæta að bryggjunni, hver af öðrum, eftir að hafa verið í uppsátri yfir veturinn. Og þá er kominn tími til að hafnarvörðurinn vakni af vetrardvalanum og fari að sinna sínu starfi sem felst aðallega í því að vigta og skrá afla sem landað er.

Í fyrra var tekin í notkun ný og glæsileg smábátahöfn. Grjótgarðurinn fyrir hana var gerður haustið 2022 en síðastliðið sumar var steyptum landstöpli komið fyrir og flotbryggja fest við hann. Þá var einnig lagt rafmagn á bryggjuna. Hún leysir af hólmi gömlu bryggjuna sem var þeim megin sem Baldur lagði að. Sú flotbryggja var flutt á Patró. Tilkoma nýju hafnarinnar bætir mjög aðstöðu og öryggi til útgerðar því þar eru bátarnir í vari fyrir kvikunni sem myndast í sunnanáttum.

Einn bátur, Æsir, hefur gert út á grásleppu það sem af er vori og hefur hann landað um 19 tonnum af grásleppu. Innra veiðisvæðið opnar 20. maí og þá fjölgar bátunum sem stunda þessar veiðar. Í vinnsluhúsinu við höfnina hefur Sæfrost ehf. séð um að verka grásleppuna sem landað er auk þess sem grásleppa hefur verið flutt þangað víða að af landinu til verkunar. Hrognin eru söltuð og seld til Svíþjóðar en hveljuna kaupir Hamrafell ehf. til frystingar. Hjá Sæfrosti hafa starfað mest 7 manns í vor og búið er að salta hrogn í rúmlega 1000 tunnur. Strandveiðarnar fara hægt af stað en það rætist vonandi úr því.

Vinnuaðstaða hafnarvarðar á Brjánslækjarhöfn er ekki upp á marga fiska en það stendur til bóta þar sem koma á upp aðstöðuhúsi fyrir hann á þessu ári. Þá er einnig í bígerð að útbúa nýtt sorpgerði á svæðinu.

Baldur siglir samkvæmt áætlun 6 daga vikunnar en 1. júní bætast laugardagarnir líka við og frá og með 9. júní verða tvær ferðir daglega. Afgreiðsla Baldurs er alfarið í umsjá fjölskyldunnar á Brjánslæk og hefur svo verið lengur en elstu menn muna.

Hvað er að frétta? er liður á heimasíðunni þar sem birtar eru fréttir af starfsstöðvum og stofnunum sveitarfélagsins.

Glæsileg nýja smábátarhöfnin

Brjánslækur - Hafnarvörður

elfar@vesturbyggd.is/+354 450 2300