Hvað er að frétta af Bröttuhlíð?
Í íþróttamiðstöðinni Bröttuhlíð starfa fjórir starfsmenn á vöktum og mikið líf er jafnan í húsinu.
Brattahlíð var tekin í notkun árið 2005. Á sundlaugarsvæðinu er útisundlaug 16,7 metrar að lengd, tveir heitir pottar, vaðlaug og sauna. Inni í byggingunni er 140 fermetra tækjasalur og 900 fermetra íþróttasalur.
Íþróttasalurinn er vel nýttur af íbúum, skóla og íþróttafélagi. Skólinn er með íþróttakennslu á morgnana og dans fyrir elstu krakkana, íþróttaskólinn með salinn fyrir yngstu börnin, eldri borgarar eru með boccia og íþróttafélögin Hörður og HHF eru með æfingar þegar skóla líkur á daginn. Þær æfingar eru körfubolti, fótbolti og frjálsar. Salurinn er einnig notaður í æfingar fyrir fullorðna sem eru körfubolti, blak, fótbolti og wod.
Um helgar er foreldrafélag leikskólans með íþróttaskóla fyrir leikskólabörnin. Þá er líka er mjög vinsælt að halda upp á afmæli í salnum. Tækjasalurinn er mikið notaður og höfum við séð mikla aukningu síðustu ár. Breyting verður í vor þegar innstimplun verður í tækjasalinn, þá verður hægt að fara í tækjasalinn fyrir opnun og eitthvað eftir lokun. Sundlaugin er ágætlega nýtt en skiljanlega meira þegar líða fer að sumri.
Hvað er að frétta? er nýr liður á heimasíðunni þar sem birtar verða fréttir frá starfsstöðvum og stofnunum sveitarfélagsins.
![Sólsetur Útsýnið af sundlaugarbakkanum er engu líkt](https://vesturbyggd-wp.kolofon.dev/wp-content/uploads/2024/03/dora-mynd-1200x900.jpg)
![Íþróttasalur](https://vesturbyggd-wp.kolofon.dev/wp-content/uploads/2024/03/img_20240318_141808_hdr-1200x1594.jpg)
![Vel búinn tækjasalur](https://vesturbyggd-wp.kolofon.dev/wp-content/uploads/2024/03/img_20240318_141916_hdr-1-1200x1594.jpg)
![Kvöldstund í sundi Glittir í Patrekskirkju í bakgrunn](https://vesturbyggd-wp.kolofon.dev/wp-content/uploads/2024/03/p1010638-1200x900.jpg)
![](https://vesturbyggd-wp.kolofon.dev/wp-content/uploads/2024/03/sundlaugamynd-horft-a-hafid-1200x900.jpg)
Útsýnið af sundlaugarbakkanum er engu líkt