Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir næstum 3 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.
Hvað má og hvað má ekki – nýjar leiðbeiningar fyrir ferðafólk
Byggt á velgengni fyrri leiðbeininga, hafa sjö bæjarfélög á Íslandi nú þróað staðbundnar leiðbeiningar til þess að taka á móti gestum skemmtiferðaskipa en Patreksfjörður er eitt af þeim.
Staðbundnar leiðbeiningar veita gestum hjálpleg tilmæli áður en komið er á hvern stað. Þær innihalda ábendingar um hvert sé best að fara og ráð um hvernig á að vera tillitsamur gestur. Meðal annars hvetja leiðbeiningarnar gesti til að njóta bæjarins og landslagsins, en láta gróður, dýr og menningararf ósnortna. Gestum er bent á að um að biðja um leyfi áður en þeir taka myndir af bæjarbúum, til þess að forðast að trufla friðhelgi þeirra. Leiðbeiningarnar benda einnig á merkisverða staði og gönguleiðir.