Hoppa yfir valmynd

Íbúa­fundur heima­stjórnar Patreks­fjarðar

Heima­stjórn Patreks­fjarðar boðar til íbúa­fundar í Félags­heimili Patreks­fjarðar þriðju­daginn 1. apríl kl. 17:00.


Skrifað: 28. mars 2025

Dagskrá fundarins verður sem hér segir:

  1. Formaður heimastjórnar setur fund, kynnir heimastjórn og hlutverk hennar.
  2. Umræða um fjárhagsáætlun næsta árs og verkefni fram undan.

Íbúafundir heimastjórna eru hugsaðir sem fyrsta formlega skrefið í vinnu heimastjórna við fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2026. Heimastjórnir vinna síðan áfram með þær ábendingar sem fram koma hjá íbúum og tillögur verða lagðar fram til bæjarstjórnar í vinnu við fjárhagsáætlun í haust.

Ritari heimastjórna

LM

liljam@vesturbyggd.is/+354 450 2310