Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 2 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Íþrótta- og tómstunda­styrkur til lágtekju­heimila

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um íþrótta- og tómstunda­styrki til lágtekju­heimila. Um er að ræða aðgerðir stjórn­valda vegna Covid-19. Styrk­urinn er veittur vegna barna sem eru fædd á árunum 2006 – 2015, og búa á tekju­lágum heim­ilum.


Skrifað: 29. nóvember 2021

Auglýsingar

Með tekjulágum heimilum er átt við heimili þar sem heildartekjur framfærenda, einstaklings, hjóna eða sambúðarfólks, voru á meðaltali lægri en 787.200 kr. á mánuði á tímabilinu mars til júní 2021.

Styrk skal greiða vegna útlagðs kostnaðar við íþrótta- og tómstundastarf á haustönn 2021 og er veittur styrkur allt að 25.000 kr. fyrir hvert barn sem hefur sama lögheimili og forráðamaður. Allir styrkir eru greiddir fyrir 31. desember 2021.

Hægt er að sækja um styrkinn frá 29. nóvember til 16. desember.

Mikilvægt er að fylla út allar línur sem fylgja umsókninni.