Íþróttakennari í Patreksskóla
Patreksskóli leitar að metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi starfsmanni með mikla þekkingu og áhuga á skólastarfi. Um er að ræða 100% starf.
Í Patreksskóla er gróskumikið skólastarf en meðal áherslna skólans er faglegt lærdómssamfélag, einstaklingsmiðað nám, leiðsagnarnám og samþætting námsgreina þar sem grunnþættir menntunar endurspeglast í skólastarfi. Íþróttalíf er gott og fjölbreytt og margir möguleikar fyrir öflugan íþróttakennara. Íþróttaaðstaða er mjög góð, í stóru íþróttahúsi með sundlaug.
Starfssvið
- Annast almenna íþrótta- og sundkennslu fyrir skólann.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Vinna samkvæmt stefnu skólans.
- Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks.
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.
Hæfniskröfur
- Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
- Sérhæfð hæfni í kennslu íþrótta.
- Hefur ánægju af að starfa með börnum og unglingum.
- Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
- Getur tileinkað sér skólastefnu Patreksskóla, s.s. Uppeldi til ábyrgðar, Heillaspor o.fl.
- Góðir skipulagshæfileikar.
- Faglegur metnaður.
Umsóknarfrestur er til og með 11. apríl 2025
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.
Umsókn um starf skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi ef við á og upplýsingar um umsagnaraðila.
Frekari upplýsingar gefur Jónína Helga Sigurðard. Berg, skólastjóri. Umsækjandi er aðstoðaður við að finna húsnæði og veittur er flutningsstyrkur. Umsóknir skulu berast á netfangið joninas@vesturbyggd.is. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.