Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.
Þjálfari á Bíldudal
Auglýst er eftir þjálfara fyrir íþróttaskólann á Bíldudal.
Skrifað: 4. janúar 2022
Íþróttaskólinn á sunnanverðum Vestfjörðum, sem er starfandi í samfellu við grunnskólahald alla virka daga á Patreksfirði, Bíldudal og Tálknafirði, er ætlaður börnum í 1.-4. bekk. Íþróttaskólinn sækir fyrirmynd sína til HSV en þar hefur íþróttaskóli verið starfræktur frá hausti 2011. Kennslan í skólanum skiptist í tvennt, annars vegar grunnþjálfunarþátt og hins vegar boltaskóla.
Umsóknarfrestur er til og með 25. janúar 2022
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar veitir Guðný Lilja Pálsdóttir, íþrótta- og tómstundafulltrúi Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps og framkvæmdastjóri héraðssambandsins Hrafna-Flóka.