Hoppa yfir valmynd

Jónína leysir skóla­stjóra af

Ásdís Snót Guðmunds­dóttir skóla­stjóri Patreks­skóla verður í náms­leyfi næsta vetur. Jónína Helga Sigurð­ar­dóttir Berg mun leysa hana af.


Skrifað: 18. apríl 2024

Fréttir

Jónína Helga er kennari við Patreksskóla og hefur gengt deildastjórastöðu undanfarið ár og verið staðgengill skólastjóra þar áður. Við bjóðum hana velkomna til starfa í þessu nýja hlutverki og óskum Ásdísi Snót velfarnaðar í náminu sem hún tekur sér fyrir hendur næsta vetur. Við hlökkum til að fá hana til baka að ári liðnu.

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs

Arnheiður Jónsdóttir arnheidur@vesturbyggd.is / 450 2300